VINIR - Hittumst oftar

VINIR - Hittumst oftar

App Store App Social Networking Iceland
6768602510 · APP.VINIR
Installs
Not published by Apple
Ratings (popularity signal, not installs): 5
Rating
5 (5 ratings)
Last version
1.4
Release date
10 Jul 2026
Last seen
30 Sept 2026
Price
0 USD
Locales
1

Screenshots

Description

Hittumst oftar! VINIR er íslenskt app sem hjálpar þér að skipuleggja hittinga og viðburði með þínum VINUM. Stofnaðu vinahóp, leggðu til hitting og VINIR finnur hentuga tímasetningu fyrir alla. ------------------------------ VINAHÓPAR Safnaðu æskuvinunum, fjölskyldunni eða vinnufélögunum í hópa og skipulegðu hittinga á einfaldan og þægilegan máta. VIÐBURÐIR MEÐ BOÐSLINK Sendu boð í afmæli, útskrift, brúðkaup eða partý á hvern sem er - líka þá sem ekki eru með appið. ENGAR TVÍBÓKANIR Haltu utan um öll þín plön á einum stað og VINIR passar upp á að þú staðfestir ekki boð sem stangast á við aðra hittinga. DEILDU MEÐ MAKANUM Bættu makanum við og deildu dagatalinu ykkar á milli svo þið getið séð hvenær makinn er upptekinn þegar þið veljið tímasetningar. VAKTAPLAN OG VINNUTÍMI Settu inn vaktaplan eða hefðbundinn vinnutíma og VINIR lætur þig vita ef hittingur/viðburður er áætlaður á vinnutíma áður en þú meldar þig. BOÐSLISTAR Ertu að skipuleggja stærri viðburð? Búðu til boðslista - æskuvinirnir, saumaklúbburinn eða stórfjölskyldan. Listann getur þú svo notað aftur og aftur fyrir aðra viðburði. ATHUGASEMDIR OG VIÐBRÖGÐ Hver hittingur og viðburður hefur sitt eigið spjall þar sem þú getur spurt spurninga, planað og deilt myndum. Mundu að merkja viðkomandi með @ ef þú vilt vera viss um að þau sjái skilaboðin. TILKYNNINGAR Þú færð einungis tilkynningar sem skipta þig máli - þér er boðið á hitting, tímasetning breytist, allir hafa valið tímasetningu, hittingurinn er á morgun o.s.frv. VINIR passar að engin plön fari framhjá þér. ------------------------------ VINIR ER FYRIR: - Vinahópa sem eiga erfitt með að finna tíma fyrir hittinga - Foreldra sem vilja samræma dagatalið með maka og börnum - Vinnufélagana sem vilja hittast utan vinnu - Fjölskylduna sem vill auka samverustundir - Alla þá sem vilja hitta sína VINI oftar! ------------------------------ Í BÍGERÐ: Partýtorgið opnar bráðum. Fylgstu með! ------------------------------ Búið til á Íslandi. Skilaboð, ábendingar og beiðnir berast til: vinir@vinirapp.is

Related

Rankings

CountryChartCategoryRankCaptured
Iceland top-free social #10 19 Sept 2026
Iceland top-free social #18 30 Sept 2026

Versions

VersionCountryObservedNotes
1.4 Iceland 30 Sept 2026 NÝTT - Bættu þínum persónulegu plönum við dagatalið fyrir góða yfirsýn - Feldu viðburð / hitting á döfinni með því að smella á hann og halda niðri í nokkrar se
1.3 Iceland 19 Sept 2026 NÝTT - Bættu þínum persónulegu plönum við dagatalið fyrir góða yfirsýn - Feldu viðburð / hitting á döfinni með því að smella á hann og halda niðri í nokkrar se